Vandamálahandbók bjórdrykkjumannsins Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fölur og tær. Orsök: Glasið er tómt. Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.
Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju, bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fremri hlutinn á þér er blautur. Orsök: Munnurinn hefur ekki verið opinn meðan þú varst að drekka EÐA glasið hefur verið sett upp við rangan andlitshluta. Viðbrögð: Kauptu annan bjór og æfðu þig fyrir framan spegil. Drekktu eins marga og þörf er á til að byggja upp fullkomna tækni. Vandamál: Fætur blautir og kaldir Orsök: Glasinu hefur verið haldið á hvolfi Viðbrögð: Snúðu glasinu við þannig að "opni" endinn snúi upp. Vandamál: Fætur blautir og heitir Orsök: Slæm stjórn á þvagblöðrunni Viðbrögð: Labbaðu upp að næsta hundi, og kvartaðu svo við eigandann að hundurinn sé illa upp alinn. Krefstu þess að fá bjór í skaðabætur Vandamál: Gólfið er þokukennt Orsök: Þú ert að horfa í gegnum botninn á tómu glasi Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér. Vandamál: Gólfið sveiflast Orsök: Of mikil ókyrrð í loftinu, sennilega vegna úrslita sem hafa orðið í einhverju spili á barnum Viðbrögð: Settu kústskaft niður bakhlutann á skyrtunni. Vandamál: Gólfið hreyfist Orsök: Það er verið að bera þig út Viðbrögð: Reyndu að komast að því hvort að það sé verið að fara með þig á annan bar. Ef svo er ekki, öskraðu þá að það sé verið að ræna þér. Vandamál: Veggurinn á móti þér er þakinn loftklæðningu og ljósaperum Orsök: Þú hefur dottið aftur fyrir þig Viðbrögð: Ef glasið þitt er fullt og enginn stendur á hendinni á þér, vertu þá bara ennþá á gólfinu og haltu áfram að drekka. Ef ekki, fáðu þá einhvern til að hjálpa þér að standa upp og haltu þér vel í barborðið. Vandamál: Allt er orðið dimmt, munnurinn á þér er fullur af sígarettustubbum Orsök: Þú hefur dottið fram fyrir þig. Viðbrögð: Sjá fyrir ofan Vandamál: Allt er orðið dimmt Orsök: Það er búið að loka barnum Viðbrögð: Hræðsla!!!!! Vandamál: Þú vaknar og finnur að rúmið þitt er kalt, hart og blautt; þú sérð ekkert inni í svefnherberginu. Orsök: Þú hefur sofnað í göturæsinu. Viðbrögð: Kíktu á klukkuna til að gá hvort að það sé búið að opna barina. Ef ekki, reyndu þá að sofa aðeins lengur |