Sælt verið fólkið, á leið Vestur.....

Jæja best að fara skrifa einhvað hingað inn áður en það fer að koma fíla á síðunna .
 
Jamm hvað byrjar maður, best að láta síðustu vikur eiga sig og vera ekkert að fjalla um þær... held að mar gæti gefið út 3 binda sögu úr þeim hehe....
 
En ætla að vinda mér beint í þessa helgi sem er að renna upp. Jamm færeyskir dagar Í Ólafsvík..... þetta er oftast nær mjög svo skemmtileg helgi... og held ég að enginn undanteikning verði á því í ár..... ég fer af stað upp úr 08:00... sem þýðir að ég næ að fara af stað um 10:00 hehe er það ekki vaninn? Jamm við sjáumst í Ólafsvík gott fólk......
 
Heimasíða færeyska og þar af leiðandi dagskráin er að finna hérna (http://www.snb.is/faereyskirdagar/)
 P.s. ég er ekki sáttur við þessi grillgötu party þarna... þar sem enginn staður heitir Göta þarna.... og hvaðan kemur mar? Jumm Götu.... svo ég er búinn að ákveða að Keflavíkurgatan og naustarbúðin á Hellissandi verði Göta....
 
Jæja Matti er víst kominn á virðulegri aldur og er kominn í hóp okkar hálf 50ára... Til Hamingju með það.... kall
 
Og þá er það Verzlaunarmanadjammið... hvert verður haldið þá? Eitthvað er verið að reyna dragamann til Eyja... en fékk sms um 2 miða til alicante á góðu verði... um sama tíma... í 2 vikur... væri til í það líka... enda jafn dýrt og eyjaferðin, en sjáum til hvað menn bjóða vel hehe....
 
Og fyrir ykkur sem hafið verið að hlægja af gigtinni minni sem er nú sem betur fer að mestu horfinn þá vill ég benda ykkur á að þetta fer að verða af faraldri og kallast núna Liverpool veikin..... (Talsmenn ástralska landsliðsins hafa gefið það út að miðjumaðurinn Harry Kewell hafi ekki geta spilað með liðinu í dag því hann þjáist af gigt. Talið var að það hefðu verið nárameiðsli sem voru að stríða leikmanninum, en nú hefur verið staðfest að hann var mjög kvalinn vegna ákveðnar tegundar gigtar.) og hana nú!!!!!

Jamm en iss mar gæti nú gert þessa blogggrein meira krassandi með sögum af ykkur sem lesið þetta nefni enginn nöfn en það koma nokkur til greina hehe en þar sem maður sjálfur er ekki í sterkri stöðu þá held ég haldi þeim fyrir sjálfan mig hehehe..
 World Cup........... jamm... þetta er búið að vera ágætiskeppni.... Leikur Brazil og Ghana var að klárast og var þetta bara nokkuð góður leikur og 2 frábærsóknarlið en einhvað vantar upp á varnarleikinn en brazil hefur nú aldrei þurft að spila vörn hehe... Mér finnst Þjóðverjarnir líklegastir eins og er eru hreinlega að spila magnaðan bolta... Svo verða það Brazil og Italy sem koma með að berjast við þá um þennan bikar... þótt ég voni að mínir menn í Argentínu komi með að blanda sér í þetta... en Spánn menn hafa verið að hæla þeim mikið en ég held að spánn er bara spánn og þeir munu haga sér þannig vantar alltaf einhvað hjá þeim þrátt fyrir frábært lið núna....
 
Jæja ætla ekki að blaðra lengur.... þetta ætti að duga. Nema eitt enn nú er að fara fram breyting á blogginu mínu þar sem síðan virðist helst til of dökk og menn þora ekki að koma inn á hana..... og ætti sú breyting að verða tilbúinn í kvöld.... Kveðja.... Thomsen frá Götu... sjáumst á færeysku......
27. júní 2006 klukkan 22:16
Fannar P Thomsen
Fjölnir skrifar ...
Það er aldelis þegar þér dettur í hug að blogga þá kemur út heil bók.. Enn færeyskir dagar skulu það vera..
27. júní 2006 klukkan 22:44
Bjarti skrifar ...
Jebb þegar hann loksins losar um ritstífluna þá bara flæðir þetta hjá honum.
Flott breyting á síðunni. Gaman að sjá að þú hefur tekið ákvörðun um færeyska. Maður þarf þá að henda þér á heisugæsluna með gat á hausnum eins og venjulega :)
28. júní 2006 klukkan 00:34
fannar skrifar ...
haha..... vonandi ekki :) ætla vera rólegur..... í þetta skiptið.....
28. júní 2006 klukkan 00:36
Fjölnir skrifar ...
Fannar rólegur hehe það verður gaman að sjá.
28. júní 2006 klukkan 01:30
skjóldal skrifar ...
Til hamingju með endurkomuna í bloggið !



Er það svo ekki bara vidjó og rólegheit um helgina ?
28. júní 2006 klukkan 01:53
fannar skrifar ...
jamm takka skjóldal... vídjó? humm.... gæti verið að mar setja góða dvd tónleikadisk á.... en það verður þá með áfengi sko..... hehe.... enginn rólegheit, enda veit mar ekki hvað það er.... lengur..... ækkss
28. júní 2006 klukkan 04:08
dóra skrifar ...
hæhæ Kútur................ Roskilde Festival er nr 1 :)
28. júní 2006 klukkan 05:34

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Könnun

Hvað á að gera á færeysku?

Leit

Leikur dagsins