27október
segiði svo ekki að færeyingar séu ekki flottastir!!! haha
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=195615Löglegt að hæða og niðurlægja samkynhneigða í Færeyjum
Í Færeyjum er löglegt að hóta, hæða og niðurlægja homma og lesbíur. Danskur háskólanemi hefur hafið alþjóðlega undirskriftasöfnun, til þess að fá þessu breytt.
Í næsta mánuði mun lögþingið í Færeyjum greiða atkvæði um lög sem gera það ólöglegt og refsivert að níðast á samkynhneigðum þegnum eyríkisins. Frumvarpið var einnig lagt fram á síðasta ári, og þá var það fellt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Margir hinna færeysku þingmanna þrumuðu þá, með Biblíuna í hendinni, að karlmenn sem lægju með karlmönnum kæmust ekki í himnaríki.
Fram að atkvæðagreiðslunni ætlar danski háskólaneminn Nynne Nörup að safna undirskriftum á netfanginu www.act-against-homophobia.underskrifter.dk. Undirskriftalistinn verður svo afhentur lögþinginu áður en atkvæðagreiðslan hefst.
06október
Forseti FUS Snæfellsbæ, það er nýja nafnið hjá ungliða hreyfingunni í snæfellsbæ. Verið er að vinna í heimasíðu fyrir félagið... og endilega skoðið hana og skráið ykkur í FFUSS.Þið getið skráð ykkur með að senda nýjum fornmanni Póst á fannarh@bifrost.is Heimasíða FFUSS er http://www.forsetifus.is
25september
24.02.2006
hætti stórbandið Whitepönks….. eftir að hafa verið til síðan 1991.En meðlimir Whiteponks hafa ákveðið að byrja að nýju eftir danadvöl hljómborðsleikarans og söngkonunnar Dóru Pönk.... en hún reyndi eining að meika það í usa ásamt þáverandi kærasta David Hasselhoff en uppúr því samstarfi og sambandi slitnaði snemma í júni.... dóra pönk hélt tónleika ásamt danska bandinu modtager í gær 23/9 sem endaði með látum við umboðsmanns sveitarinnar og hefur hún þess ákveðið að koma heim... Og endurvekja hvítapönið..... hún hefur einnig verið í sambandi við fyrrum gítarleikara sýrablús&handriðið sem uppi var á árunum 1989-1993.Endurkoma Whitepönks er fyrirhugið seint á þessu ári eða snemma á því næsta en í þeirri endurkomu verða þau Dóra Pönk og Nari Pönk ásamt hinum stórfenglega gítarista CrazyPönk. Og birt verður viðtal við bandið fljótlega....
04september
jamm.... þetta er allt að koma
:) ég fer að blogga.... annars fór ég vestur um helgina það var helvíti fínt, djammið tekið edrú! enda orðinn lélegur drykkjumaður..... en það hlítur að lagast hehe.... bæó.....
09júlí
jebb... mar skelti sér bara á skagann í gærkvöldi.... edrú og tók rúnt. mikið af fólki hörkustuð þarna... hitti Hrannar frænda og son ólafs þorðar sem ég man ekki alveg hvað heitir hehe.... rúntaði með þá einhvað... jamm hitti líka Bjarka frænda og ??? bjarki, ný kærasta? hehe.... jamm svo er það bara Sandaragleði næst á dagskrá.... er ekki stemmari fyrir þeim þarna fyrir vestan?
Kveðja:Thomsen frá sandi....
04júlí
hehe....

þetta er bara fyndið...
03júlí
öss.... jebb bara segja ykkur það ég vaknaði kl 5:13...... öss þessir færeyskudagar eru nú meira ruglið.... en djöfull var gaman... skrifa einhvað um þetta seinna í dag.... hehe.....
30júní
öss...... Ási ætti að gera meira grín af því hvað ég kem sjaldan vestur.... ég er eiginlega alltaf þarna nú orðið.... svo oft að það væri næstum ódýrara að búa þarna og keyra þaðan í vinnuna!!!
Jæja allavega...... þá byrjar fjörið..... jebb það er grenjandi rigning... hvað annað það eru færeyskir dagar og aldrei hef ég komið til færeyjar nema það sé rigning.... haha..... en hverjum er ekki sama?? ekki sef ég í tjaldi.... ;)
það sem mar hefur heyrt er að yfir 50manna unglingahópur úr kópavogi sé að koma á þetta... og álíka mikið úr árbæ..... jebb færeyskir er málið hjá unga fólkinu í dag! og jamm nokkrir úr keflavík líka! bö......
Svo það verður fjör hjá gæslucrewinu.... hehe sem er gott mál!! þá fæ ég kannski frið fyrir þeim á meðan haha.....
en elsku bestu snæfellingar ég er á leið heim!! svo ég sé ykkur innan nokkra tíma... mikið eigið þið eftir að verða glöð!!! og jamm ég kannski líka smá hehe...
kl hvað verður byrjað að drekka??? jumm 15:00 yfir fyrsta leik 8liða úrslita á HM06.... Þýskaland Vs ARGENTÍNA....... og það er bara eins gott fyrir AFA að vinna þennan leik.... annars verður einhverjum fórnað í kvöld... og eins gott að gæslucrewið skipti sér ekki af því....
Bæbb....
Kveðja: Thomsen frá Götu.........
30júní
http://thomsen.bloggar.is/myndir/350/2318/44a4487b86032.jpgArgentína vann í kvöld, og það er brjálað lið í bænum....
hehe þessa mynd og undirskrift fékk ég senda frá frænda mínum sem er á spáni eftir leik Argentínu og Mexico á laugdkv..... öss ég hefði fílað mig í þessum hópi hehe :).......
en jamm dóra kr er í því að senda mér sms frá hróaskeldu.... öss núna í þessum skrifuðum orðum er sigurós að spila..... og seinna í kvöld verða besta band sögunar og ætlar þessi ezka að hringja svo ég geti heyrt smá í Guns n Roses live..... öss Öfund..... sé nú bara eftir því núna að hafa ekki farið með....
En jamm mar heyrir útum allt hérna í rvk að það sé svakastemmari fyrir færeysku allir að tala um það og allir að koma..... djö verður gaman mar hehe...
Kveðja:thomsen frá Götu......
27júní
Jæja best að fara skrifa einhvað hingað inn áður en það fer að koma fíla á síðunna .
Jamm hvað byrjar maður, best að láta síðustu vikur eiga sig og vera ekkert að fjalla um þær... held að mar gæti gefið út 3 binda sögu úr þeim hehe....
En ætla að vinda mér beint í þessa helgi sem er að renna upp. Jamm færeyskir dagar Í Ólafsvík..... þetta er oftast nær mjög svo skemmtileg helgi... og held ég að enginn undanteikning verði á því í ár..... ég fer af stað upp úr 08:00... sem þýðir að ég næ að fara af stað um 10:00 hehe er það ekki vaninn? Jamm við sjáumst í Ólafsvík gott fólk......
Heimasíða færeyska og þar af leiðandi dagskráin er að finna hérna (http://www.snb.is/faereyskirdagar/)
P.s. ég er ekki sáttur við þessi grillgötu party þarna... þar sem enginn staður heitir Göta þarna.... og hvaðan kemur mar? Jumm Götu.... svo ég er búinn að ákveða að Keflavíkurgatan og naustarbúðin á Hellissandi verði Göta....
Jæja Matti er víst kominn á virðulegri aldur og er kominn í hóp okkar hálf 50ára... Til Hamingju með það.... kall
Og þá er það Verzlaunarmanadjammið... hvert verður haldið þá? Eitthvað er verið að reyna dragamann til Eyja... en fékk sms um 2 miða til alicante á góðu verði... um sama tíma... í 2 vikur... væri til í það líka... enda jafn dýrt og eyjaferðin, en sjáum til hvað menn bjóða vel hehe....
Og fyrir ykkur sem hafið verið að hlægja af gigtinni minni sem er nú sem betur fer að mestu horfinn þá vill ég benda ykkur á að þetta fer að verða af faraldri og kallast núna Liverpool veikin..... (Talsmenn ástralska landsliðsins hafa gefið það út að miðjumaðurinn Harry Kewell hafi ekki geta spilað með liðinu í dag því hann þjáist af gigt. Talið var að það hefðu verið nárameiðsli sem voru að stríða leikmanninum, en nú hefur verið staðfest að hann var mjög kvalinn vegna ákveðnar tegundar gigtar.) og hana nú!!!!!
Jamm en iss mar gæti nú gert þessa blogggrein meira krassandi með sögum af ykkur sem lesið þetta nefni enginn nöfn en það koma nokkur til greina hehe en þar sem maður sjálfur er ekki í sterkri stöðu þá held ég haldi þeim fyrir sjálfan mig hehehe..
World Cup........... jamm... þetta er búið að vera ágætiskeppni.... Leikur Brazil og Ghana var að klárast og var þetta bara nokkuð góður leikur og 2 frábærsóknarlið en einhvað vantar upp á varnarleikinn en brazil hefur nú aldrei þurft að spila vörn hehe... Mér finnst Þjóðverjarnir líklegastir eins og er eru hreinlega að spila magnaðan bolta... Svo verða það Brazil og Italy sem koma með að berjast við þá um þennan bikar... þótt ég voni að mínir menn í Argentínu komi með að blanda sér í þetta... en Spánn menn hafa verið að hæla þeim mikið en ég held að spánn er bara spánn og þeir munu haga sér þannig vantar alltaf einhvað hjá þeim þrátt fyrir frábært lið núna....
Jæja ætla ekki að blaðra lengur.... þetta ætti að duga. Nema eitt enn nú er að fara fram breyting á blogginu mínu þar sem síðan virðist helst til of dökk og menn þora ekki að koma inn á hana..... og ætti sú breyting að verða tilbúinn í kvöld.... Kveðja.... Thomsen frá Götu... sjáumst á færeysku......